top of page

Úthlíð í Bláskógarbyggð - Maí 2023

fös., 05. maí

|

Úthlíð, 806, Iceland

Á kærleiksdögum verður fjölbreytt dagskrá, hugleiðsla, fyrirlestrar og hópheilun á þessum fallega stað. Hægt er að velja um fjölbreitta einkatíma sem verða í boði. Gist verður í litlum notalegum sumarhúsum og samveran verður haldin í Maríukirkjunni sem hefur einstaka orku.

Úthlíð í Bláskógarbyggð - Maí 2023
Úthlíð í Bláskógarbyggð - Maí 2023

Tími & staður

05. maí 2023, 15:00 – 07. maí 2023, 15:00

Úthlíð, 806, Iceland

Um viðburðinn

Kærleiksdagar standa yfir frá föstudegi til sunnudags. Á dagskránni eru margskonar samverustundir og meðferðatímar. Þátttaka í meðferðatímum er innifalin í þátttökugjaldi, en greiða þarf sérstaklega fyrir einkatíma. Samveran fer fram í kirkjunni. Heitir pottar eru á svæðinu.

Þátttökugjald fyrir helgina er kr. 6.000. Það er í boði að taka þátt í einn dag, og er þátttökugjald þá 3.000 kr. fyrir daginn. Allir velkomnir.

Fyrir áhugasama er boðið upp á gistingu gegn gjaldi.

Gist er í smáhúsum í sveitinni. Í boði eru eins eða tveggja manna herbergi með uppábúnum rúmum. Verðið er 31.200 kr. á mann í tveggja manna herbergi, og 35.200 kr. fyrir eins manns herbergi. Innifalið er gisting í tvær nætur, og morgun-, hádegis-, og kvöldverðir í tvö skipti.

Greiða þarf fyrir gistingu á staðnum.

DAGSKRÁ

Bókanir

  • Kærleiksdagar

    Laugar í Sælingsdal

    ISK 0

    Sale ended

Deila þessum viðburði

bottom of page