top of page

Ný heimasíða Kærleiksdaga lítur dagsins ljós

  • Nov 3, 2022
  • 1 min read

Nýja síðan er hönnuð til að koma upplýsingum um viðburði á vegum Kærleigsdaga til skila á einfaldan hátt og auðvelda skráningu og aðgengi fyrir snjallatæki og farsíma.



Hér verður hægt að lesa allt um Kærleiksdaga, viðburði framundan og fá upplýsingar um þá fyrirlesara, meðferðaraðila, miðla, heilara, daleiðendur og spálesara sem koma fram á Kærleiksdögum.




“Nýja heimasíðan verður lifandi vettvangur viðburða á vegum Kærleiksdaga þar sem hægt er að fá allar upplýsingar um komandi helgardvöl, fá dagskrá og skrá sig á viðburði.”


Kærleiksdagar stofnaðir 1997

Kærleiksdagar hófust á Narfastöðum árið 1997. Þeir voru stofnaðir af 5 manna hóp sem rak andlega miðstöð á Akureyri sem hét Blikið. Vigdís Kristín Steinþórsdóttir var ein af stofnendum og hefur séð um Kærleiksdaga síðan 2001. Kærleiksdagar hafa oftast verið haldnir á Sólheimum, Núpi, Narfastöðum og í Skálholti en árið 2022 voru þeir haldnir í Skjaldarvík í Eyjafirði, Úthlíð í Bláskógarbyggð, Krít á Grikklandi og Laugum í Sælingsdal. Kærleiksdagar eru yfirleitt helgardvöl þar sem boðið er uppá nærandi samveru, hugleiðslu, hópheilun, fyrirlestra og einkatíma í ýmsum heildrænum meðferðum s.s. nuddi, höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferð, Bowen, heilun, miðlun og dáleiðslu.

 
 
 

Comments


bottom of page